Kynferðislegt ofbeldi er:
Mundu …
Ef þú ert barn undir 18 ára aldri þá mælum við með því að þú talir við foreldra þína. Ef það eru hinsvegar mamma þín eða pabbi sem eru að meiða þig – og þú treystir þeim ekki … reyndu þá að leita til einhvers annars sem þú getur treyst – og segðu frá. Þú getur t.d. reynt að tala við ömmu þína eða afa, frænda þinn, frænku, bróður eða systur. Ef það ber engan árangur … talaðu þá við kennarann þinn, skólastjórann eða hjúkrunarkonuna í skólanum. Umfram allt; Ekki gefast upp! Haltu áfram þar til þú finnur einhvern sem vill hjálpa þér. Og mundu að þú getur alltaf hringt í 112 og talað við þá sem svara í símann þar. Þeir munu síðan sjá til þess að rétta fólkið komi og hjálpar þér. Hringdu í 112 eða 1717 eða sendu tölvupóst á net-fangið blattafram@blattafram.is Þar er gott fólk sem getur og vill hjálpa þér. Þú skiptir máli …. og þetta er ekki þér að kenna. Sumum leyndarmálum á maður að segja frá … jafnvel þó einhver sem þér þykir vænt um hafi sagt þér að þú mættir engum segja. |